Lögheimili eignamiðlun ehf., Skólabraut 26, Akranesi Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, sími 845-7445 - gudrun@logheimili.is, og Erla Dís Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, sími 698-7088 - erladis@logheimili.is kynna í einkasölu: Mikið endurnýjað raðhús að Leynisbraut 32, 300 Akranesi.
BÓKA SKOÐUN hjá Erlu Dís Guðmundsdóttir í síma 6987088 eða erladis@logheimili.is
Um er að ræða 120,1 fm raðhús þar af bílskúr 31,3 fm. Birt stærð íbúðarhússins er 88,8 fm og skiptist samkvæmt grunnteikningu í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, þvottahús sem notað er sem skrifstofurými/herbergi í dag og baðherbergi. Verönd/pallur í suðvestur með rafmagnspotti og lítið garðhús/skúr í garðinum sem fylgir.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með upprunalegum flísum á gólfi og fataskáp
Alrými/stofa/eldhús:
Stofa með harðparketi á gólfi, útgengt út á pall
Eldhús: Endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu, endurnýjuðum bakarofni og helluborði, innbyggðum ísskáp með frysti auk þess sem uppþvottavél er innbyggð. Eldhús er með harðparketi á gólfi.
2-3 svefnherbergi: Í dag er sjónvarpsými í einu, svefnherbergi í einu og tölvu/vinnurými stúkað af milli bílskúrs og gangs þar sem þvottarými er á grunnteikningunni. Herbergin eru með harðparketi á gólfi en flísar á vinnurými. Fataskápur er í svefnherberginu.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað að öllu leyti flísalagt, gólfhiti, sturta, vaskinnrétting, handklæðaofn og upphengt wc.
Þvottarými: Þvottahús er í bílskúr í dag og er það flísalagt með vaski, handklæðaofni og útgengt út á pall.
Verönd: Suðvestur verönd með palli og skjólveggjum, rafmagnspotti og litlum skúr sem fylgir með.
Hiti í bílaplani fyrir framan hús.
Nánari upplýsingar veitir Erla Dís Guðmundsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 698-7088, tölvupóstur erladis@logheimili.is og Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 845-7445, tölvupóstur gudrun@logheimili.is
Endurbætur síðastliðin ár að sögn seljanda:
2023: Nýtt dekk á pallinum
2021: Baðherbergi endurnýjað að öllu leyti, ný tæki, flísalagt og gólfhiti.
2020: Eldhús tekið í gegn og skipt um parket á íbúðinni.
2018: Skipt um hurðar í eigninni.
2015: Milliveggir teknir og þvottahúsi breytt í skrifstofurými/herbergi og þvottarými stúkað af með vegg í bílskúr.
2014: Að sögn seljanda var stífla í niðurfallinu eftir fyrri eiganda, kom smá leki við sturtubotninn sem þau skiptu um. Sagað var af þilinu og ný plata felld í.